þriðjudagur, 24. febrúar 2009

Þegar ég kom....

... kom heim í dag rotaðist ég í sófanum. Í dag var foreldradagur. Ég var virkilega lúin eftir daginn.

þriðjudagur, 10. febrúar 2009

Þá er búið...

... að bóka gistingu fyrir sumarfríið. Við öll ætlum að arka Laugarveginn með Ruth, Kobba, Ísold, Hoffí og nokkrum í viðbót. Mannsi ætlar að trússa. Ég hlakka mikið til.

sunnudagur, 8. febrúar 2009

Helga frænka mín...

... er á skíðanámskeiði. Námskeiði er fyrir 3-5 ára krakka. Það er alveg ótrúlega krúttlegt að sjá þau rennar sér niður brekkuna. Hér eru myndir af henni og mömmunni áður en námskeiðið byrjaði. Náum vonandi myndum af henni bruna niður brekkuna næst. Laugardagurinn var afskaplega fagur og nutum við sælunnar í Stafdal.



sunnudagur, 1. febrúar 2009

Til hamingju Íslendingar

Loksins almennilegt fólk að stjórna landinu.

laugardagur, 24. janúar 2009

Í gærkvöldi var...

... hið árlega þorrablót hér á Egilsstöðum. Við hjónin skemmtum okkur vel. Sungum átum og drukkum. Dönsuðum og tjúttuðum lengur en við erum vön. Næst er það svo Jökuldalurinn eftir tvær vikur. Mikið hlakka ég til.

laugardagur, 17. janúar 2009

Hún Þorgerður okkar...

hefur sérlega gaman að því að baka. Ekki er nú alltaf allt til sem þarf í kökurnar og þá er bara fundið eitthvað annað til að hræra saman við degið. Hún notar bara hugmyndaflugið og yfirleitt kemur þetta nú ágætlega út hjá henni. Eitthvað er hún nú lík Finnu Dóru ömmu sinni með þetta.

sunnudagur, 11. janúar 2009

Þá hef ég ...

... aftur tekið upp prjónana. Nú er prjónað í frumburðinn. Við fundum ægilega sæta peysu í blaði nirði í kauffó. Og nú er ég byrjuð að þræla fram og til baka. Vonandi verður þetta ekki allt of vítt á hana, hún er nebblega svo ansi mjó.



Það er þessi bláa.